Nokia X3 00 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að

halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið

blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.

78 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur, líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess

geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og

undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því

og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld og

fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim

eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja

rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan aukabúnað. Ef tæki vinnur ekki rétt skal

fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.