
Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir
skaltu gera eftirfarandi.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka hleðslutækið úr
sambandi við tækið og síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna með USB-snúru sem tengd er við tölvu.
1 Tengdu USB-snúruna við USB-tengi tölvunnar og einnig við tækið.
2 Fjarlægðu USB-snúruna þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á meðan
það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Ef síminn er settur í hleðslu meðan kveikt er á útvarpinu geta gæði merkisins
minnkað.
Síminn tekinn í notkun 11