
Kort og GPS
Ekki er innbyggt GPS-loftnet í tækinu. Til að hægt sé að nota forrit sem krefjast GPS-
tengingar þar samhæfan ytri GPS-móttakara (aukabúnaður seldur sér). Paraðu GPS-
móttakarann við tækið með þráðlausri Bluetooth-tengingu. Nánari upplýsingar er
að finna í notendahandbók GPS-móttakarans.
Hægt er að nota GPS-kerfið (global positioning system) til að styðja kortaforritið.
Finndu út staðsetningu þína eða mældu fjarlægðir og reiknaðu út hnit.
Eftir að tækið er parað við ytri GPS-móttakara geta liðið nokkrar mínútur þar til
staðsetningarupplýsingar að birtast í tækinu.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla
ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða
fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
Kort 67

og kann að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði
gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði
GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða
neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og
málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að
treysta eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir
staðsetningu eða leiðsögn.